Ásgeir Trausti heldur útgáfutónleika á heimaslóðum
Ásgeir Trausti Einarsson heldur útgáfutónleika á heimaslóðum sunnudagskvöldið 16. september nk. en tónlistarmaðurinn hefur notið mikilla vinsælda undanfarin misseri og hefur m.a. átt lag á toppi vinsældarlista Rásar 2, einnig á vinsældarlistum hjá útvarpstöðvunum Kananum og X-inu 977.
Tónleikarnir eru í tilefni af útgáfu frumraunar Ásgeirs Trausta í plötugerð, en platan Dýrð í dauðaþögn kemur út þriðjudaginn 11. september nk. og verða tónleikarnir haldnir í Félagsheimilinu Hvammstanga og hefjast kl. 21:00. Miðaverð á tónleikana er 2.000 kr. Miðasala fer fram á vefnum Miði.is.
Ásgeir Trausti er alinn upp á Laugarbakka í Húnaþing vestra, af foreldrum sínum þeim Einari Georg Einarssyni kennara og Pálínu Fanney Skúladóttur kennara og organista.
Um Ásgeir Trausta segir á Miða.is:
„Ásgeir Trausti er ungur tónlistarmaður sem kom fyrst fram á sjónarsviðið í sjónvarpsþættinum Hljómskálanum í vor. Þar söng hann lagið Sumargestur sem fangaði vorstemninguna og um leið huga þjóðarinnar. Ásgeir Trausti fylgdi vinsældum þess lags eftir með smáskífunni Leyndarmál sem náði gífurlegri hylli og kom honum endanlega á kortið sem einum efnilegasta tónlistarmanni landsins.
Ásgeir Trausti lærði klassískan gítarleik og tónlistin hefur lengi spilað stórt hlutverk í hans lífi. Þess má geta að hann er meðlimur í hljómsveitinni The Lovely Lion sem sló í gegn í Músíktilraunum í ár.
En það var ekki fyrr en hann bankaði uppá hjá Guðmundi Kristni Jónssyni (Kidda Hjálmi), upptökustjóra í Hljóðrita, að hjólin fóru virkilega að snúast. Hljóðprufur sem hann hafði í sínum fórum lofuðu svo góðu að ráðist var í upptökur undir eins. Sú vinna hefur nú skilað sér í fyrstu breiðskífu Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, sem mun líta dagsins ljós í september.
Platan inniheldur 10 lög, þar á meðal Sumargest og Leyndarmál. Tónlistinni má lýsa sem töfrandi blöndu af þjóðlagapoppi og raftónlist þar sem fallegar laglínur, gítarplokk og há og falleg rödd Ásgeirs gegna lykilhlutverki.
Það er ljóst að margir bíða spenntir eftir þessari fyrstu plötu Ásgeirs Trausta eftir frábæra innkomu hans í íslenskt tónlistarlíf. Ásgeir semur öll lögin á plötunni en um textagerð sjá þeir Einar Georg Einarsson, faðir Ásgeirs, og vinur Ásgeirs, Júlíus Aðalsteinn Róbertsson. Upptökustjórn var í höndum Guðmundar Kristins Jónssonar.“
http://www.youtube.com/watch?v=coptRCCDOkM&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=rtbAEM7mEdw&feature=related