Ásgeir Trausti með fjórar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna

Tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2012 voru kynntar í dag, föstudaginn 30. október, við hátíðlega athöfn í Hörpu. Ásgeir Trausti er tilnefndur í fjórum flokkum og er hann einn af þremur tónlistarmönnum/hljómsveitum sem fá flestar tilnefningar í ár. Þess má geta að Ásgeir Trausti er í viðtali í Jólablaði Feykis sem kom út í gær. 

Verðlaunahátíðin mun fara fram í febrúar 2013 og eru tilnefningar Ásgeirs Trausta í eftirtöldum flokkum:

  • Lagahöfundur ársins (popp og rokk): Fyrir lög á plötunni Dýrð í dauðaþögn.
  • Lag ársins (popp og rokk): Fyrir lagið Leyndarmál. Lag: Ásgeir Trausti. Texti: Einar Georg Einarsson og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson.
  • Söngvari ársins: Fyrir einlægan og heillandi söng á fyrstu plötu sinni, Dýrð í dauðaþögn, sem hæfði beint í mark.
  • Hljómplata ársins (popp og rokk): Dýrð í dauðaþögn.

Þá er Guðmundur Kristinn Jónsson tilnefndur til upptökustjóra ársins, m.a. fyrir plötuna Dýrð í dauðaþögn og Einar Georg Einarsson, faðir Ásgeirs Trausta, tilnefndur til textahöfundur ársins, fyrir texta á plötunni Dýrð í dauðaþögn.

Tilnefningarnar má skoða á vefnum Tónlist.is. 

Fleiri fréttir