Ásgeir Trausti með tónleika á Hvammstanga

Sunnudagskvöldið 29. desember n.k. verður Ásgeir Trausti með tónleika í félagsheimilinu á Hvammstanga. Á vef Norðanáttar.is er sagt frá því að Ásgeir Trausti, Júlíus og félagar eru nú í tónleikaferð um Evrópu sem lýkur 17. desember n.k. Snemma í janúar heldur hljómsveitin svo aftur af landi brott en ensk útgáfa af Dýrð í Dauðaþögn, In the Silence, kemur út í Bretlandi og Evrópu í lok janúar og í byrjun febrúar í Bandaríkjunum.

Á tónleikunum á Hvammstanga verður hin norska Farao með í för, en hún hefur séð um upphitun á tónleikaferðalagi Ásgeirs um Evrópu og Bretland undanfarið. Farao er sólóverkefni hinnar norsku Kari Jahnsen sem gaf nýverið út sína fyrstu fjögurra laga skífu. Tónlist Farao er lýst sem melódísku þjóðlagapoppi með ísköldu Norrænu yfirbragði og sem einhvers konar samblöndu af tónlist Bon Iver, Poliça og Laura Marling.

Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og er miðaverð kr. 3.500 kr. Miðasala á tónleikana fer fram á Miði.is.

Ásgeir Trausti hélt síðast tónleika í félagsheimilinu á Hvammstanga í september 2012 í tilefni af útgáfu Dýrð í dauðaþögn. Hægt er að rifja upp stemmninguna með því að skoða myndir frá tónleikunum á vef Norðanáttar.

Fleiri fréttir