Áskorendamót Riddara Norðursins

Áskorendamót Riddara Norðursins verður haldið í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki, næstkomandi  föstudagskvöld, 13. mars og hefst mótið kl. 20:00.

Líkt og síðustu ár skora Riddarar Norðursins á fjögur lið til að keppa við sig. Þrjú af þessum liðum hafa mætt áður en þau eru: Vatnsleysa, Viðar á Björgum og Lúlli Matt. Riddarar kynna nú með ánægju nýtt lið til keppni, Hafsteinsstaði.

Keppt er í tölti, fjórgangi, fimmgangi og skeiði. Hvert lið sendir einn keppenda í hverja grein og einungis eru riðin úrslit. Að sjálfsögðu vinnur svo stigahæsta liðið. "Þar sem að maður er manns gaman verða Riddarar með gleði og glens í anddyri reiðhallarinnar að móti loknu og vonast að sjálfsögðu til að sjá sem flesta. Aðgangseyrir er krónur 1000," segir í fréttatilkynningu frá Riddurum Norðursins.

Fleiri fréttir