Aukin aðsókn að Selasetri Íslands
Gríðarleg aukning hefur verið í aðsókn að Selasetri Íslands á Hvammstanga það sem af er sumri og eru horfurnar góðar. Vignir Skúlason framkvæmdarstjóri Selasetursins segir í samtali við Norðanátt.is það megi m.a. þakka hnitmiðaðri markaðssetningu ásamt góðu veðri. Ekki hafa fregnir af hvítabirni á svæðinu skaðað aðsóknina heldur þvert á móti en samkvæmt Vísi.is vilja ferðamenn ólmir kanna hvort björninn sé í leit að æti á þessu selsælasta svæði landsins.
Báturinn Brimill hjá Selasiglingum siglir með ferðamenn um Húnaflóann og hefur verið nóg að gera hjá bátnum og áhöfninni síðustu daga, enda er spennandi að sjá hvort selaskoðunarferðin gæti breyst í ísbjarnarskoðunarferð.
„Þeir eru náttúrlega svolítið spenntir. Það væri mjög gaman að sjá hann en það eru mjög litlar líkur á því held ég. Þetta er mikið svæði sem hann getur farið um svo ég hugsa að það séu meiri líkur á að vinna í lottóinu en að sjá ísbjörninn á þessu svæði,“ segir Kjartan Sveinsson, selaskoðunarleiðsögumaður í samtali við Vísi.is.
„Það er nóg af sel og urtan er nýbúin að losa sig við kópana. Hún er bara með þá á spena í sex vikur. Þeir eru forvitnir svo það er örugglega ekki flókið fyrir hann að fá sér kóp í matinn. Ég er alveg viss um það,“ Kjartan.
Þess má geta að Selasetur Íslands og Selasiglingar eru komið í náið samband við Hvalasafnið á Húsavík og hefur fengið styrki frá Vaxtarsamning Norðurlands vestra og menningarráði til frekari þróunar á því samstarfi.
Þá hefur opnunartími setursins verið lengdur til muna og er nú opið frá kl. 9:00 – 21:00 alla daga vikunnar. Að auki opnaði setri fyrr í vor en áður hefur verið.
Hægt að fylgjast með starfsemi Selasetursins á Facebook.