Aukin hagræðingarkrafa á HS

Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki er ætlað að skera enn frekar niður í starfsemi sinni samkvæmt fjárlögum en stofnunin glímir við mikinn hallarekstur. Að sögn Hafsteins Sæmundssonar forstjóra HS hafa ekki ennþá verið teknar neinar ákvarðanir um breytingar á starfsemi stofnunarinnar.

„Við höfum ítrekað bent á mikla slagsíðu sem er í fjárveitingum til HS og höfum við þurft að sæta meiri niðurskurði en nokkur önnur heilbrigðisstofnun hefur mátt þola.  Auðvelt er að benda á þessa skekkju sem er í úthlutun fjármagns en leiðrétting hefur ekki fengist,“ segir Hafsteinn um alvarlega stöðu Heilbrigðisstofnunarinnar. Hann bætir við að miðað við óbreytt framlag þurfi verulega að draga saman seglin.

Framkvæmdastjórn HS hitti þingmenn stjórnarflokkanna í Norðvesturkjördæmi á sl. mánudag og samkvæmt Hafsteini lofuðu þeir að skoða hvort finna mætti viðunandi lausn. Þá eru sveitarstjórnarmenn í Skagafirði einnig upplýstir um stöðuna og ætla að leita leiða til að fá þessum málum breytt.

„Það er þó ljóst að við getum ekki beðið lengur með að ráðast til atlögu við hallarekstur og áframhaldandi aukna hagræðingarkröfu.  Það mun skýrast á næstu vikum hvert stefnir,“ segir Hafsteinn í samtali við Feyki.

Fleiri fréttir