Aukin heitavatnsnotkun Skagfirðinga í kuldatíðinni
Í kuldatíðinni fyrir helgi varð eðlilega mikil aukning á heitavatnsnotkuninni hjá Skagfirðingum og varð heldur meiri en gerist á meðaldegi að vetrarlagi. Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar segir að notkunin á föstudag hafi verið um 200 l/sek en að meðaltali er hún um 160 l/sek að vetrarlagi og um 95 l/sek yfir sumartímann. Notkunin þann daginn var því 25% meiri en á venjulegum vetrardegi og meira en tvöföld á við það sem gerist að sumarlagi.
Þá segir að heitt vatn hefi verið notað í Skagafirði um aldaraðir eins og sést t.d. í Sturlungu þar sem kemur fram að konur hafi farið að Reykjarhóli (sem Varmahlíð er byggð sunnan og austan til í dag) til þvotta. Nýting jarðhitans hófst þó ekki að verulegu marki fyrr en kom fram á 20. öldina.
Skagafjarðarveitur reka í dag sex hitaveitur, þ.e. Sauðárkróksveitu, Varmahlíðarveitu, Steinsstaðaveitu, Hjaltadalsveitu, Hofsósveitu og Sólgarðaveitu. Heitu vatni á vegum Skagafjarðarveitna er dreift til um 87% heimila í Skagafirði. Nýjasta viðbótin eru tengingar bæja í Hegranesi við hitaveitukerfi Skagafjarðarveitna.