Austan Vatna sigruðu spurningakeppnina

Lið Grunnskólans austan Vatna gerði sér lítið fyrir og vann landshlutakeppni í Spurningakeppni grunnskólanna nokkuð örugglega en það var haldið í Miðgarði á miðvikudagskvöldið.  

Liðið skipuðu þau; Lovísa Helga, Grétar Snær og Ríkey Þöll. Þetta þýðir það að skólinn er kominn áfram í keppninni og keppir næst til úrslita á landsvísu.

Fleiri fréttir