Ávinningur sameiningar ekki augljós
Níu manna nefnd á að skoða faglegan og fjárhagslegan ávinning sameiningar háskólanna þriggja í norðvesturkjördæmi. Erla Björk Örnólfsdóttir rektor Hólaskóla - Háskólans á Hólum segir í samtali við RÚV.is sóknartækifærin í samstarfi þessara þriggja skóla ekki vera augljós.
Samkvæmt frétt RÚV stendur til að skipa nefnd til að á skoða faglegan og fjárhagslegan ávinning af aukinni samvinnu eða samrekstri háskólanna í norðvesturkjördæmi. Í nefndinni eru auk fulltrúa frá skólunum, fulltrúar sveitarfélaga, alþingismenn og fleiri.
Menntamálaráðuneytið hefur óskað eftir því að hver skóli tilnefni einn fulltrúa í nefndina. Auk þess sitja fulltrúar frá sveitarfélaginu Skagafirði og Borgarbyggð í nefndinni. Tveir þingmenn eru skipaðir, þeir Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, og Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í sama kjördæmi. Þau Hellen Gunnarsdóttir og Þórarinn Sólmundarson eru fulltrúar menntamálaráðuneytisins. Í erindisbréfi um skipan nefndarinnar er ekkert gefið upp um innan hvaða tímaramma nefndin skuli starfa og ekki er búið að boða fyrsta fund.
Að sögn Erlu Bjarkar Örnólfsdóttur rektors Hólaskóla hafi háskólinn á Hólum hingað til haft mikið gagn af samstarfi opinberu háskólanna fjögurra, þ.e. HÍ, HA, Landbúnaðarháskólans auk Hólaskóla. Það sé því á skjön við þá vinnu að skoða eigi sameiningu háskólanna í norðvesturkjördæmi.
„Hvort að fyrirfram sjái ég fleiri eða færri sóknartækifæri í þessu samstarfi, þá svona fyrirfram sé ég þau ekki jafn augljós enda hefðum við þá hugsanlega horft til þess í upphafi og ekki horft til samstarfs innan nets opinberu háskólanna,“ segir Erla Björk. Hún segir að forsvarsmenn Hólaskóla muni fara í þessa nefndarvinnu á faglegum forsendum og ekki sé hægt að gefa sér niðurstöðuna úr þeirri vinnu fyrirfram.