Bætt samband viðskiptavina Vodafone

Vodafone hefur verið að vinna í að bæta GSM samband viðskiptavina fyrirtækisins umtalsvert undanfarið, með því að setja upp nýjar GSM stöðvar og  stækka 3G svæði sitt.  

Um er að ræða þrjár nýjar GSM-stöðvar víða í Húnavatnssýslum. Fram kemur á heimasíðu Vodafone að ein þeirra sé á sunnanverðu Vatnsnesfjalli (Grenjadalsfelli) og bæti það verulega sambandið á þjóðvegi 1, milli Blönduóss og Miðfjarðar og á stóru svæði þar í kring, td.við inni í Miðfirði og við Hópið.

Önnur stöð var komið fyrir í sunnaverðum Vatnsdal og þar með fá nokkrir bæir, sem aldrei hafa notið GSM samband áður, komið í gott farsíma samband.

Þriðja stöðin er á Hnjúk, í norðanverðum Vatnsdal og með henni fá nokkrir bæir til viðbótar betra GSM samband, sem ýmist hafa ekki verið með farsíma samband áður eða mjög takmarkað samband.

Vodafone hefur einnig verið að stækka 3G svæði sitt undanfarna mánuði og hefur Varmahlíð bæst við þau þéttbýlissvæði sem nú njóta 3G sambands.

„Þess má geta að þar sem 3G þjónusta er ekki í boði er samt sem áður hægt að komast á netið í símanum (eða með nettengli) í gegnum GSM kerfið. Allar GSM stöðvar Vodafone bjóða upp á allt að 230 Kbps netsamband með E-GPRS eða EDGE tækninni. Slík tenging dugar fyrir flest almennt netráp (t.d. Facebook,fréttavefi o.þ.h.) og tölvupóst en nýtist síður til að streyma tónlist eða myndböndum,“ segir á heimasíðu Vodafone.

Fleiri fréttir