Baldur Haraldsson Íþróttamaður Skagafjarðar 2014

UMSS og UMF Tindastóll héldu samkomu í Húsi frítímans á Sauðárkróki sl. laugardag, þann 27. desember, þar sem kynntar voru niðurstöður úr vali á Íþróttamanni Skagafjarðar og Íþróttamanni Tindastóls fyrir árið 2014. Baldur Haraldsson rallýkappi var valinn Íþróttamaður Skagafjarðar og Jóhann Björn Sigurbjörnsson spretthlaupari hlaut titilinn Íþróttamaður Tindastóls 2014.

Þess má geta að Baldur var fyrir skömmu einnig valinn „Akstursíþróttamaður ársins“ af Akstursíþróttasambandi Íslands. Í  2. sæti í vali á Íþróttamanni Skagafjarðar varð Jóhann Björn Sigurbjörnsson og í 3. sæti Arnar Geir Hjartarson.

Þá var Hlynur Þór Haraldsson golfþjálfari útnefndur Þjálfari ársins 2014, kvennasveit Golfklúbbs Sauðárkróks var valin Lið ársins 2014, og einnig voru veittar viðurkenningar til hóps efnilegra unglinga.

Íþróttamaður Tindastóls verðlaunaafhending. Ljósm./Tindastóll.is Íþróttamaður Tindastóls verðlaunaafhending. Ljósm./Tindastóll.is

Eftirfarandi voru tilnefndir til Íþróttamanns Skagafjarðar  2014:

  • Arnar Geir Hjartarson (golf)
  • Baldur Haraldsson (akstursíþróttir)
  • Gísli Gíslason (hestamennska)
  • Helgi Rafn Viggósson (körfuknattleikur)
  • Jóhann Björn Sigurbjörnsson (frjálsíþróttir)
  • Jón Friðbjörnsson (akstursíþróttir)
  • Loftur Páll Eiríksson (knattspyrna)

 

Tilnefningar til Íþróttamanns Tindastóls 2014:

  • Bríet Lilja Sigurðardóttir (körfuknattleikur)
  • Guðrún Jenný Ágústsdóttir (knattspyrna)
  • Jóhann Björn Sigurbjörnsson (frjálsíþróttir)
  • Loftur Páll Eiríksson (knattspyrna)
  • María Finnbogadóttir (skíði)
  • Pétur Rúnar Birgisson (körfuknattleikur)
  • Rannveig Sigrún Stefánsdóttir (sund)
  • Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir (frjálsíþróttir)

 

Fleiri fréttir