Bangsar á Bókasafni Húnaþings vestra

Alþjóðlegur bangsadagur er haldinn hátíðlegur víða um heim þann 27. október sem er  fæðingardagur Theodore „Teddy“ Roosevelt, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Þar sem dagurinn ber upp á sunnudag þetta árið er dagsins minnst víða á leikskólum í dag og litu eldri börnin á Leikskólanum Ásgarði við á Bókasafni Húnaþings vestra. Mörg þeirra tóku bangsana sína með, hittu bókasafnsbangsana og litu í bangsabækur. Eins og sjá má á myndunum, sem Guðmundur Jónsson sendi Feyki, var jafnframt náttfatadagur hjá þeim.

Sagan segir að Roosevelt hafi verið mikill skotveiðimaður, en dag einn á bjarnarveiðum fann hann svo til með litlum bjarnarhúni að hann sleppti honum lausum í stað þess að skjóta hann. Washington Post birti skopmynd af atvikinu sem vakti heimsathygli. Á veraldarvefnum er hægt að finna sögu af því að búðareigandi í New York hafi verið einn þeirra sem heilluðust af sögunni og bjó til leikfangabangsa sem hann kallaði „Bangsann hans Teddy“ en Roosevelt var gjarnan kallaður Teddy. Bangsinn seldist eins og heitar lummur og brátt fóru leikfangabangsar að ganga undir nafninu „teddy“ í Bandaríkjunum.

 

 

 

Fleiri fréttir