Bárður Eyþórsson næsti þjálfari Tindastóls

Búið er að ganga frá ráðningu Bárðar Eyþórssonar sem þjálfara úrvalsdeildarliðs Tindastóls í körfubolta og tekur hann við af Borce Ilievski sem sagði sig frá starfinu eftir þriðja tapleik liðsins á dögunum.

 

Bárður mun halda sína fyrstu æfingu með liðinu í kvöld klukkan 18:30 og stýra liðinu gegn Stjörnunni heima annað kvöld. Bárður sem lengst af sínum ferli spilaði með Snæfelli hefur einnig öðlast reynslu sem þjálfari þess sem og  ÍR og Fjölnis.

Hingað kemur Bárður af frystitogaranum Hrafni Sveinbjarnasyni þar sem var einn af skipverjum þess og vonandi fiskast eins vel hjá honum hjá Tindastóli í vetur eins og áður.

Að sögn Geirs Eyjólfssonar hafa hlutirnig gengið hratt fyrir sig síðustu daga og er mikil ánægja með það að fá Bárð á Krókinn.

Fleiri fréttir