Barna- og unglingastarf hestamannafélagana

Hestamannafélögin í Skagafirði hafa lagt línurnar fyrir barna- og unglingastarf vetrarins og er skráning þegar hafin. Samkvæmt áætlun mun vikuleg kennsla hefjast þriðjudaginn 28. janúar og verður þátttakendum þá skipt í hópa. Helgarkennsla hefst laugardaginn 15. febrúar.

Samkvæmt heimasíðu hestamannafélagsins Stíganda er vikulega starfið hugsað fyrir þá sem eru lengra komnir en helgarstarfið  fyrir byrjendur og lítið vana en þeir sem ekki komast á virkum dögum eru einnig velkomnir.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Stíganda eða Léttfeta.

Fleiri fréttir