Bellmann, Presley og Raggi Bjarna

Næst komandi sunnudag, þann 1. mars mun Karlakórinn Heimir halda tónleika í Frímúrarasalnum á Sauðárkróki. Ari Jóhann Sigurðsson tenór syngur einsöng. „Hinn stórefnilegi sólórokkari frá Löngumýri, Sigvaldi Gunnarsson á Löngumýri, þreytir frumraun sína sem einsöngvari með kórnum og klípur gítarstrengi,“ segir í tilkynningu frá kórnum.

Stjórnandi kórsins er Sveinn Arnar Sæmundsson og píanóleikir er hinn snjalli Thomas R. Higgerson. „Á efnisskránni eru hefðbundin karlakóralög, óperukórar og söngleikjatónlist. Bellmann lætur í sér heyra. Presley og Raggi Bjarna verða heiðraðir með ábreiðum. Atli og Gunnar kynna,“ segir enfremur í tilkynningunni. Boðið verður upp á glæsilegt kaffihlaðborð að söng loknum.

Fleiri fréttir