Benedikt brjálast í Úkraínska sjónvarpinu
Benedikt S. Lafleur hefur vakið mikla athygli í úkraínska sjónvarpinu undanfarna mánuði en þar er hann meðal þátttakenda í skyggnikeppni. Þátttakendur detta út einn af öðrum og er Benedikt ásamt átta öðrum enn í keppninni af 159 sem hófu keppnina. Útsendingar hófust í byrjun október en hægt er að fylgjast með þáttunum á netinu. Í einum slíkum kemst Benedikt í hann krappann þegar skotið er á hann af stórum riffli og blótaði hann hressilega á íslensku.
„Alþjóðlega skyggnikeppnin minnir meir á kvikmyndaleik en hæfileikakeppni þar sem maður er umkringdur túlkum og förðunarmeisturum og stundum handritahöfundum,“ segir Benedikt á Fésbókarsíðu sinni og finnst honum þetta í senn ótrúlega krefjandi fyrir hann sem leikara, talnaspeking og næmihæfileika almennt.
Í fimmta þættinum er spennandi atriði þar sem Benedikt hefur stillt sér upp með epli á höfðinu eftir að hafa valið riffil handa konu til að skjóta af. Eflaust hefur hann skynjað hana skotfæralausa en annað kemur á daginn. Eftir að skotið ríður af sést Benedikt blóta af bræði á íslensku og segir hann að úkraínska sjónvarpið hafi ekki séð ástæðu til að blokkera hljóðið eins og gert var þegar Ivan, annar keppandi, blótaði á úkraínsku af augljósum ástæðum.
Benedikt segist verða var við aukna frægð í Úkraínu enda nokkrum sinnum verið stoppaður á götu og m.a. hafi kona úr annarri borg ferðast til að fá einkatíma í talnaspekigreiningu hjá honum. Hann segist eiga raunhæfa möguleika á að komast á toppinn og hvetur hann alla til að fylgjast með æsispennandi keppni.
Þættina má finna HÉR og skotatriðið þar sem bölvað er hressilega á íslensku er 5. þátturinn, merktur Выпуск 5 (03.11.2013) Смотреть онлайн og hefst á 34. mínútu.