Benedikt Rafnsson nýr veitustjóri Húnaþings vestra
Búið er að ganga frá ráðningu Benedikts Rafnssonar í starf veitustjóra Húnaþings vestra frá og með 1. nóvember nk. Benedikt er með BSc. próf í véla- og orkutæknifræði sem og meistararéttindi í vélvirkjun en frá þessu er greint á vef Húnaþings vestra.
Benedikt hefur starfað sem gæðastjóri hjá Set ehf. og sem sölu- og tækniráðgjafi hjá sama fyrirtæki og starfaði hann um tíma sem framleiðslustjóri hjá RST Net. Benedikt hefur haldgóða þekkingu á veitukerfum, hönnun veitna og góða þekkingu á veituefnum.
