Bent á að aka frekar um Vatnsskarð
Búast má við umferðartöfum á Þverárfjallsvegi í allt að 20 mínútur vegna fræsinga á yfirborði vegar. Vegfarendur eru beðnir um að skoða tæki sín vel og þrífa strax á næsta þvottaplani ef sementsblandaður aur hefur sest á þau. Einnig er bent á að aka frekar um Vatnsskarð, sú leið er 29 km lengri, miðað við að leiðin liggi á Sauðárkrók. Áætluð verklok eru 5. júlí 2013.