Besta töltsýning sem sést hefur

Frá því er sagt í Morgunblaðinu á laugardaginn að töltsýning Skagfirðingsins Jóhanns Skúlasonar á Hnokka frá Fellskoti sé að mati sérfræðinga ef til vill besta töltsýning sem sést hefur, enda uppskáru þeir félagar 9.20 fyrir í forkeppni á heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem fram fer í Berlín í Þýskalandi.

Í samtali við Morgunblaðið þakkar Jóhann margra ára þjálfun þennan góða árangur. Hesturinn sem sé 10 vetra gamall hafi orðið meistari á síðasta móti og sé frábær að upplagi. Hann bætir því við af hógværð að kannski hafi sín reynsla og þekking eitthvað með þetta að gera. Það stefnir því allt í hans sjötta heimsmeistaratitil á átta árum sem yrði einstakt afrek.

 

 

Fleiri fréttir