Bíða þess að komast á brimbretti

Í Fljótum bíður franskt par þess að veður gengur niður svo hægt verði að fara á brimbretti í sjónum við Hraun. Parið er nú veðurteppt og gistir hjá Stefaníu Hjördísi Leifsdóttur og fjölskyldu sem reka ferðaþjónustu á Brúnastöðum. 

„Þau ætla að vera hérna á Íslandi í mánuð og sörfa, og voru svona svolítið bjartsýn, því þau eru með tjald og ætluðu að tjalda á Hraunum og fara á brimbretti í sjónum en áttu ekki von á þessu óveðri,“ segir Stefanía Hjördís í samtali við Rúv.is

Stefanía segir parið nú bíða eftir því að veðrið lægi en þá ætla þau að halda því til streitu að fara á brimbretti, blautbúningarnir séu tilbúnir og þau hræðist ekki kaldan sjó.

„Við vorum svolítið hissa, sérstaklega á tjaldútilegunni, við komumst varla milli húsa og bæja eins og veðrið en núna. En það er víst orðið sífellt algengara að fólk fari á brimbretti á þessum árstíma. Þetta er kannski eitthvað sem maður ætti að skoða sem nýjan markhóp í ferðaþjónustunni,“ segir hún.

Uppfært 14:33

Feykir hafði samband við Stefaníu og segir hún ferðalangana vera hörkutól og ýmsu vön. „Hann er fjallaleiðsögumaður í Noregi. Þau eru hingað komin á þessum skrítna tíma til brimbrettaiðkunar vegna þess að þau ætla að samþætta gönguskíðamennsku og brimbrettaiðkun. Mikið indælisfólk sem helst vildu koma aftur og hjálpa til í sauðburði,“ segir Stefanía.

Fleiri fréttir