Bílveikur aðstoðarbílstjóri í Skagafjarðarrallýinu - Myndband

Í Skagafjarðarrallýinu sem fram fór í lok júlí gerðist skondið atvik er aðstoðarbílstjórinn Brynjar Sverrir Guðmundsson á Sauðárkróki varð bílveikur á fyrstu sérleiðinni og kastaði upp. En hann lét það þó ekki stöðva sig í keppninni.

Á vef Víkurfrétta segir Sigurður Arnar Pálsson, sem er bílstjórinn, að lyktin hefði ekki verið góð í bílnum en það hafi ekki komið til greina að hætta keppni. Þeir Brynjar hafa ekið saman síðan árið 2010 og aldrei hefur annað eins komið upp. Brynjar hefur aldrei á ævinni orðið bílveikur en svo virðist sem einhver flensa hafi gert vart sig hjá aðstoðarbílstjóranum.

http://www.youtube.com/watch?v=7rTysuA6zc8

Fleiri fréttir