BioPol fær góða gesti
Starfsfólk BioPols fékk til sín góða gesti úr Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í gær. Á heimasíðu sjávarlíftæknisetursins kemur fram að þarna voru um 35 nemendur á ferð í tengslum við Opna daga sem nú er í gangi í Fjölbrautaskólanum en þeir völdu að ferðast um sitt heimahérað og heimsækja fyrirtæki og stofnanir.
Nemendurnir fengu almenna kynningu á starfsemi BioPol ehf. á Skagaströnd og fengu síðan tækifæri til þess að ganga um skoða ýmislegt áhugavert á rannsóknastofu félagsins.
„Við hjá BioPol erum afar þakklát yfir að fá svona áhugasama gesti í heimsókn og teljum mjög mikilvægt fyrir fyrirtækið að fá tækifæri til að kynna starfsemi sína fyrir svona ungu og frambærilegu fólki,“ segir á heimasíðunni.