Bíræfinn dýrbítur

Í eftirleitum sl. föstudag fann Hlífar Hjaltason bóndi í Víðiholti  illa farna kind í Kiðaskarði milli fyrrum Lýtingsstaðahrepps í Skagafirði og Svartárdals í Húnavatnssýslu. Ærin sem var veturgömul var illa bitin eftir refi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

 

Henni var samstundis lógað en greinilegt er að svæsinn dýrbítur er þarna á ferð sem leggst á fullorðið fé. Það er álit margra að ref hafi fjölgað á landinu samfara minnkandi fjárframlögum ríkisins í þann málaflokk sem ætlað er að halda þeim vágesti sem refurinn er í skefjum.

Fleiri fréttir