Birkilundur - biðlisti verður áfram

Enginn sótti um að verða dagmamma í Varmahlíð en Sveitarfélagið Skagafjörður ásamt Akrahreppi auglýsti eftir áhugasömum fyrr í sumar. Í fundargerð samstarfsnefndar sveitarfélaganna tveggja segir að engar umsóknir hafi borist og því ljóst að biðlisti verður við leikskólann Birkilund.

Ákveðið var að vinna áfram að hugmyndum um stækkun leikskólans með flutningi í húsnæði grunnskólans.

Fleiri fréttir