Bjartar nætur um Jónsmessuhelgina
Sumarhátíðin Bjartar nætur - Fjöruhlaðborð í Hamarsbúð verður haldin á Jónsmessu þann 23. júní n.k. en þá verða liðin 18 ár síðan hátíðin var haldin í fyrsta skipti. Frá byrjun hefur þessi hátíð verið vegleg matar- og menningarveisla í Hamarsbúð á Vatnsnesi, þar sem Húsfreyjurnar leitast við að halda gamalli matarhefð á lofti. Á Fjöruhlaðborðinu eru því margar gerðir af mat sem ekki er almennt á borð borinn ásamt nýrri og hefðbundnari tegundum.
Í ár verður hátíðin haldin laugardaginn 23. júní og hefst kl. 19. Á staðnum verður stórtjaldið á sínum stað, með hljóðfæraleik, fjöldasöng og vinsælu bögglauppboði. Göngugarpar fá tækifæri að mæta fótgangandi (með leiðsögumanni).Upplýsingar um gistimöguleikar á svæðinu er að finna á www.northwest.is.