Bjartsýni á gengi Tindastólsmanna í vetur

Í síðustu netkönnun Feykis.is voru lesendur spurðir hvernig þeir reiknuðu með að Tindastólsmönnum mundi ganga í körfunni í vetur. Könnunin var að sjálfsögðu sett í loftið eftir tvo góða sigurleiki Tindastólsmanna og svörin kannski lituð af þeim úrslitum. Það er óhætt að segja að nokkur bjartsýni einkenni niðurstöðurnar.

Í það minnsta voru 45% þeirra sem svöruðu á því að fljúgandi sigling verði á Stólunum og þeir taki deildina. 17% reiknuðu með strögli framan af móti en síðan tækju Stólarnir Íslandsmeistaratitilinn.

13% svarenda var alveg sama og voru helst á því að leggja ætti niður allar íþróttir nema kannski brids. Annars má skoða niðurstöðurnar á myndinni sem hér fylgir með.

Fleiri fréttir