Björn og Hlédís stýra vinnu við mótun landbúnaðarstefnu

Rekið til réttar í Skagafirði. Mynd: PF.
Rekið til réttar í Skagafirði. Mynd: PF.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað verkefnisstjórn um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Í henni sitja Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, og Hlédís Sveinsdóttir, ráðgjafi og verkefnastjóri. Með henni starfa Bryndís Eiríksdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, og Sigurgeir Þorgeirsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri.

Í tengslum við vinnu samráðshóps um endurskoðun búvörusamninga lét ráðherra KPMG vinna sviðsmyndagreiningu um framtíð landbúnaðarins til ársins 2040. Þar er talið nauðsynlegt að móta heildstæða stefnu greinarinnar, landbúnaðarstefnu fyrir Ísland. Á grunni þessa hefur ráðherra ákveðið að setja vinnu við mótun stefnunnar formlega af stað.

Samvinnuverkefni bænda, neytenda og atvinnulífs
Mótun landbúnaðarstefnu er samvinnuverkefni stjórnvalda, bænda, neytenda og atvinnulífs. Verkefnisstjórn mun efna til funda með bændum og öðrum hagaðilum í því skyni að virkja þá til þátttöku í stefnumótuninni. Fyrir milligöngu ráðuneytisins verður stofnað til samráðs við þingflokka. Samráð verður haft við fulltrúa Bændasamtaka Íslands, Samtaka atvinnulífsins, Neytendasamtakanna og Alþýðusambands Íslands og þeim gefinn kostur á að fylgjast með framvindu verksins á vinnslustigi.

Samkvæmt skipunarbréfi verkefnisstjórnarinnar skal við mótun landbúnaðarstefnu litið til eftirfarandi meginþátta:

1.         Með öflugum landbúnaði verði Ísland leiðandi í framleiðslu á heilnæmum landbúnaðarafurðum – sérstaklega verði hugað að fæðu- og matvælaöryggi og samkeppnishæfum rekstrarskilyrðum í sátt við umhverfi og samfélag.
2.         Tryggð verði byggðafesta með nýtingu tækifæra í krafti nýsköpunar og vöruþróunar sem taki mið af grænum lausnum, matarmenningu og sjálfbærni.
3.         Menntun, rannsóknir og þróun mótist af hæfilegri samþættingu fræðilegra viðfangsefna og ráðgjafar í þágu þeirra sem stunda landbúnað og vinnslu landbúnaðarafurða.
4.         Með hvötum og stuðningi verði dregið úr umhverfisáhrifum og stuðlað að verndun, endurheimt og nýtingu landvistkerfa í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun frá árinu 2016.
Gert er ráð fyrir að tillaga að landbúnaðarstefnu fyrir Ísland muni liggja fyrir þann 31. mars 2021.

„Á undanförnum misserum hefur átt sér stað metnaðarfull vinna sem hefur skapað grundvöll fyrir því að móta landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, m.a. með sviðsmyndagreiningu KPMG um framtíð landbúnaðarins árið 2040. Af þeirri greiningu er ljóst að íslenskur landbúnaður stendur að mörgu leyti á krossgötum. Því er ég sannfærður um nú sé rétti tíminn til að fara í þessa vinnu og skapa sameiginlega sýn og áherslur til framtíðar. Móta það hvernig við ætlum að takast á við það verkefni að Ísland verði leiðandi í framleiðslu á heilnæmum landbúnaðarafurðum, en á sama tíma horfa til þess að íslenskur landbúnaður er ekki aðeins framleiðsluferill á matvælum heldur hvílir greinin á breiðari grunni. Það er því allra hagur að við förum í þá vinnu að móta Landbúnaðarstefnu fyrir Ísland: bændur, neytendur, smásöluaðila, framleiðendur og stjórnvöld,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir