Blakdeild Kormáks býður uppá byrjendaæfingar

Blakdeild Kormáks ætlar að bjóða uppá byrjendaæfingar. Samkvæmt auglýsingu í Sjónauka vikunnar verður fyrsta æfingin verður fimmtudaginn 25. ágúst kl. 20 – 21. Er sú æfing er eingöngu fyrir þá sem hafa ekki spilað blak og langar að byrja.
Síðan verða opnar æfingar og öllum frjálst að mæta 30. ágúst og 1. september kl. 18:30 – 20:00. Eftir þessar æfingar verður ekki tekið við byrjendum fyrr en í janúar.
Æfingagjöldin eru 2000 kr. á mánuði sem fer uppí þjálfarakostnað og keppnisgjöld. Í vetur verða æfingar á þriðju- og fimmtudögum kl. 18:30 - 20:00.