Bogfiminámskeið í sumar
Hugmyndir eru uppi um að halda nokkur bogfiminámskeið í sumar í samstarfi við Skotfélagið Ósmann í Skagafirði og Markviss á Blönduósi. Indriði R. Grétarsson mun sjá um námskeiðin en hann hefur verið ötull að kynna bogfimi hér í héraði og um allt land. Það komast fjórir á hvert námskeið sem verða um fjórir tímar hvert.
Að sögn Indriða eru ekki komnar dagsetningar á námskeiðin ennþá þar sem þátttaka ræður hverju sinni en þau verða haldin um helgar og lágmarksaldur 14 ára með samþykki forráðamanns. Þeir sem hafa áhuga og óska eftir nánari upplýsingum um verð o.fl. Geta sent fyrirspurnir á laugartun@gmail.com eða í s 848-1429.
-Námskeiðið eitt og sér gefur ekki rétt til að eignast boga, það þarf að vera í íþróttafélagi sem stundar bogfimi og hafa þau sett þessi námskeið sem skilyrði að fólk fái vottun frá félögunum til að geta keypt og eignast boga, segir Indriði.