Bókamessa að hefjast í Frankfurt
Ísland verður heiðursgestur Bókasýningarinnar í Frankfurt árið 2011, sem fer fram 12. til 16. október. Þarna gefst einstakt tækifæri til að koma á framfæri íslenskri bókmenningu, bæði við Þjóðverja og bókaheiminn allan, en líka til að kynna íslenska menningu og listir almennt. Skagfirðingarnir Gyrðir Elíasson og Arnaldur Indriðason koma við sögu sem og Sigurður Hansen.
Gyrðir er einn þeirra íslensku rithöfunda sem kynntir verða á Bókamessunni en hann hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á sínum ferli, og nú síðast bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011 fyrir bók sína, Milli trjánna. Gyrðir fæddur 4. apríl 196,1 austfirðingur að uppruna en ólst upp á Sauðárkróki. Gyrðir verður með upplestur um helgina.
Arnaldur Indriðason á ættir að rekja til Skagafjarðar en faðir hans Indriði Guðmundur Þorsteinsson fæddist þann18. apríl 1926 í Skagafirði. Þá feðga er óþarfi að kynna nánar en á heimasíðu Sögueyju Íslands sem er heiðursgestur Bókamessunnar er viðtal við þennan vinsæla rithöfund. Arnaldur er víðkunnur fyrir sínar bækur en búast má við því að hann verði í sviðsljósinu í Frankfurt þar sem bækur hans njóta mikilla vinsælda í Þýskalandi.
Eitt af þeim myndböndum sem notað var til kynningar Sögueyjunnar á íslenskri menningu fyrir Bókamessuna var af grjóthernum sem Sigurður Hansen í Kringlumýri myndaði úr grjóthnullungum, einn fyrir hvern mann sem tók þátt í Haugsnesbardaga sem háður var 19. apríl 1246. Myndbandið er hægt að nálgast HÉR