Bolir á stuðningsmenn Tindastóls

Nú fer stemningin að stigmagnast fyrir úrslitaleikinn í Powerade- bikarnum sem fram fer þann 18.febrúar í Laugardalshöllinni milli Tindastóls og Keflavíkur. Margar hugmyndir eru komnar á loft um umgjörð og athafnir áhorfenda til að skapa sem mestu og bestu stemningu.

Adam Smári Hermannsson hefur póstað því á Facebook að hann sé að safna í pöntun á bolum sem stuðningsmenn Tindastóls geta klæðst á leikjum liðsins í vetur og hvað þá í Laugardagshöllinni.

Tekið verður við pöntunum fram að hádegi á föstudag.
Sími. 775 0775
Email. bolir@dammi.is

Fleiri fréttir