Bolir fyrir þá sem lifa það af að keyra Vatnsnesveg
Selasetrið á Hvammstanga hefur látið framleiða boli með nýstárlegri merkingu, til minningar fyrir þann sem keyrir Vatnsnesveg og lifir það af. I survived road 711, stendur framan á bolnum sem má á íslensku útleggja sem Ég lifði það af að keyra Vatnsnesveg.
„Er ekki sagt að í öllum krísum felist tækifæri? Við búum við handónýtan og hættulegan veg, og datt þess vegna í hug að láta framleiða boli þar sem ferðamenn geta hreinlega stært sig af því að hafa lifað hann af,“ segir á Fésbókarsíðu Selasetursins.
Bolirnir eru seldir á setrinu og eru til í gulu og svörtu, í herra- og dömusniðum.
Öllu gríni fylgir alvara segir á síðunni og þess vegna verða svona bolir líka afhentir ráðamönnum þegar til þeirra næst.