Boltinn er ekki að detta fyrir Stólana

Tindastóll spilaði við Grindavík síðastliðið föstudagskvöld í Iceland Express-deildinni og er skemmst frá því að segja að heimamenn í Grindavík unnu öruggan sigur. Það hefur verið saga Stólanna það sem af er tímabilsins að eiga afleitan upphafsfjórðung í leikjum sínum og það varð engin undantekning frá þeirri óskrifuðu reglu suður með sjó. Lokatölur leiksins voru 85-65.

Það tók Grindvíkinga ekki langan tíma að ná yfirhöndinni og var Watson bakvörður heimamanna Stólunum erfiður. Staðan var 29-13 að loknum fyrsta leikhluta og strax á töluverðan bratta að sækja. Varnarleikurinn skánaði til mikilla muna í öðrum leikhluta og leikur liðsins allur annar. Í hálfleik var staðan 47-36 fyrir Grindavík.

En strákarnir náðu sér ekki almennilega á strik í síðari hálfleik og var hittni leikmanna alls ekki nógu góð. Þrettán stigum munaði á liðunum fyrir síðasta leikhluta og síðustu mínúturnar var sí og æ leitað að Moe og Hampton til að klára sóknirnar og það var ekki að gera sig. Lokatölur 85-65.

Það má kannski hugga sig við það að Grindvíkingar tróna á toppi deildarinnar og hafa unnið alla fjóra leiki sína til þessa. Það var því við ramman reip að draga. Stuðningsmenn Tindastóls eru þó á því að liðið eigi talsvert inni og sé langt frá því að hafa spilað að eðlilegri getu það sem af er tímabilinu.

Á föstudagskvöldið var bakvörðurinn Moe Miller stigahæstur með 20 stig og hann tók sömuleiðis flest fráköst allra á vellinum eða 11 talsins. Þriggja stiga hittni beggja liða var slök, bæði lið gerðu 4 slíkar og var nýtingin um 25%.

Stig Tindastóls: Moe 20, Hampton 17, Rikki 11, Hreinsi 5, Helgi Viggós 5, Helgi Margeirs 3, Svabbi 2 og Þröstur 2.

Fleiri fréttir