Boltinn fer brátt að rúlla af stað eftir jólafrí
Meistaraflokkarnir eiga báðir leiki um næstu helgi.
Mfl karla halda í víking næstkomandi föstudag og leika við Hött á Egilsstöðum. Búast má við hörkuleik enda Hattarmenn í baráttunni við toppinn í deildinni. Á vef Tindastóls kemur fram að strákarnir hafi æft vel um jól og áramót og séu tilbúnir í átökin sem framundan eru hjá þeim.
Mfl kvenna byrjar nýja árið á heimavelli á laugardag kl 17:00 og mæta þær Fjölni úr Grafarvoginum. Er óhætt að segja að þar sé um sannkallaðan toppleik að ræða, Fjölnisstúlkur 2 stigum ofar en Tindastóll en Fjölnir er með 10 stig ásamt Breiðabliki. Hefur verið virkilega gaman að fylgjast með stelpunum í vetur og er óhætt að segja að þær eigi framtíðina fyrir sér. Stuðningsmenn Tindastóls eru hvattir til að mæta í íþróttahúsið nk. laugardag kl 17:00 og styðja við bakið á þeim.