Bráðvantar lækna á HS

Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki bráðvantar lækna til starfa. Tvær stöður hafa verið auglýstar frá því síðastliðið vor en engar umsóknir borist.

Að sögn Hafsteins Sæmundssonar forstjóra Heilbrigðisstofnunarinnar, er það landlægt vandamál að læknar fáist ekki til starfa. „Þar sem lækna og hjúkrunarfólk vantar einnig til starfa í Noregi og Svíþjóð fara þeir fremur þangað. Þar fá þeir mun betri kjör og spilar lágt gengi íslensku krónunnar þar einnig stórt hlutverk.“

Hafsteinn bendir á að vandamálið liggi meðal annars í því að unglæknar þurfa flestir að klára sérnámið erlendis, þá yfirleitt í Skandinavíu. Þá er ekkert tiltökumál fyrir þá að setjast varanlega að í þeim löndum.

Velferðaráðuneytið býður einungis upp á átta námsstöður hér á landi. Þær eru allar hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og allar í heimilislækningum. „Við erum að reyna að vinna í því að fá námsstöður til okkar út á land. Við teljum að það myndi auka líkurnar á því að læknar myndu setjast hér að og jafnvel að læknanemar úr landsbyggðinni myndi sækja í að fara aftur í sína heimabyggð,“ segir Hafsteinn.

Hafsteinn segist vera uggandi yfir stöðunni. „Ef ástandið heldur svona áfram og gengi krónunnar verður áfram svona óhagstætt kemur til með að vanta alveg í stéttina, bæði lækna og hjúkrunarfólk.“

Nú starfa þrír fastráðnir læknar við Heilbrigðisstofnuna en tvo lækna vantar til viðbótar. „Við erum nokkurnveginn búin að manna stöðurnar til áramóta en svo vitum við ekki hvað gerist eftir það,“ segir Hafsteinn.

Fleiri fréttir