Brennisteinslykt við Goðdali
Veðurstofunni barst tilkynning í morgun um óvenjulegan lit á Vestari-Jökulsá í Skagafirði að því er fram kemur á Mbl.is í dag. Mælir Veðurstofunnar á Goðdalabrú staðfestir að ekki sé um vatnavexti í ánni að ræða en sjónarvottar segja ána grugguga eins og steypu og ennfremur finnist brennisteinslykt í grennd við Goðdali.
Ekki er vitað hvað skýrir litinn. Búið er að senda tvo menn á svæðið til að taka sýni og kanna aðstæður. Nokkrar skýringar hafa verið nefndar í tengslum við þennan atburð: aurskriða, jökulhlaup úr Sátujökli, það er Höfsjökli, en áin á upptök í honum norðvestanverðum eða framhlaup í jöklinum, en engin þeirra hefur verið staðfest.