Brennur og flugeldamarkaðir björgunarsveitanna í Skagafirði

Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð, Björgunarsveitin Skagfirðingasveit og Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi hafa hafið flugeldasölu en allur ágóði flugeldasölunnar rennur til björgunarstarfsins. Flugeldasalan er mikilvægasta fjáröflun sveitanna og stendur undir stórum hluta af rekstri þeirra yfir árið, er segir á heimasíðu Landsbjargar. 

Flugeldamarkaður Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð hófst í gær og verður fram á gamlársdag í Björgunarstöðinni við Sauðárkróksbraut. Kveikt verður á brennu kl. 20 á gamlárskvöld og verður hún fyrir framhluta Skagafjarðar við gatnamót efri byggðar að norðan. Flugeldasýningin hefst kl. 20:30.

Flugeldamarkaður FBSV verður opinn sem hér segir:

Fimmtudaginn 29. desember kl. 10-22
Föstudaginn 30. desember kl. 10-22
Gamlársdag 31. desember kl. 10-14

 

Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar og Skátafélagsins hófst í gær í Sveinsbúð, Borgarröst 1 Sauðárkróki. Kveikt verður á brennu kl. 20:30 og flugeldasýning hefst kl. 21.

Flugeldamarkaður Skagfirðingasveitar verður opinn sem hér segir:

  • Fimmtudaginn 29. desember kl. 10-22
  • Föstudaginn 30. desember kl. 10-22
  • Gamlársdag 31. desember kl. 10-16
  • Föstudaginn 6. janúar kl. 15-19

 

Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Grettis er í húsnæði KS við Suðurbraut til 31. desember. Kveikt verður á brennu á Móhól ofan við Hofsós á gamlárskvöld kl. 20:30 og flugeldasýning á vegum Grettis hefst kl. 21.

Flugeldamarkaður Grettis verður opinn sem hér segir:

Fimmtudaginn 29. desember kl. 10-22
Föstudaginn 30. desember kl. 10-22
Gamlársdag 31. desember kl. 10-14

Björgunarsveitin Grettir mun einnig standa fyrir flugeldasýningu við brennuna sem verður við Víðines skammt frá Hólum í Hjaltadal. Kveikt verður á brennunni kl. 20:30 og flugeldasýningin hefst kl. 21.

 

Tekið er fram að börn yngri en 16 ára fá ekki afgreiðslu nema í fylgd með fullorðnum og minnt er á notkun flugeldagleraugnanna til að vernda augun.

http://www.youtube.com/watch?v=h3WMv7olUWI

 

 

 

 

Fleiri fréttir