Brennur og flugeldamarkaðir björgunarsveitanna í Skagafirði

Frá flugeldasýningu Skagfirðingasveitar á Sauðárkróki um síðastliðin áramót. Ljósm./BÞ
Frá flugeldasýningu Skagfirðingasveitar á Sauðárkróki um síðastliðin áramót. Ljósm./BÞ

Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð, Björgunarsveitin Skagfirðingasveit og Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi hafa hafið flugeldasölu en allur ágóði flugeldasölunnar rennur til björgunarstarfsins. Flugeldasalan er mikilvægasta fjáröflun sveitanna og stendur undir stórum hluta af rekstri þeirra yfir árið.

Flugeldamarkaður Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð hófst í gær og verður fram á gamlársdag í Björgunarstöðinni við Sauðárkróksbraut. Kveikt verður á brennu kl. 20:30 á gamlárskvöld og verður hún fyrir framhluta Skagafjarðar við gatnamót efri byggðar að norðan. Flugeldasýningin hefst um kl. 21:00.

Flugeldamarkaður FBSV verður opinn sem hér segir:

  • Þriðjudaginn 29. desember kl. 10-22
  • Miðvikudaginn 30. desember kl. 10-22
  • Gamlársdag 31. desember kl. 10-14

 

Skagfirðingasveit Sauðárkróki

Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar og Skátafélagsins hófst í gær í Sveinsbúð, Borgarröst 1 Sauðárkróki. Kveikt verður á brennu kl. 20:30 og flugeldasýning hefst kl. 21:00.

Flugeldamarkaður Skagfirðingasveitar verður opinn sem hér segir: 

  • Þriðjudaginn 29. desember kl. 10-22
  • Miðvikudaginn 30. desember kl. 10-22
  • Gamlársdag 31. desember kl. 10-16
  • Þrettándanum 6. jan. kl. 15-19

 

Grettir á Hofsósi

Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Grettis er í nýbyggingu björgunarsveitarinnar (gengið inn að vestan) til 31. desember. Kveikt verður á brennu á Móhól ofan við Hofsós á gamlárskvöld kl. 20:30. Flugeldasýning verður á vegum Grettis bæði á Hólum og á Hofsósi og hefjast kl. 21:00.

Flugeldamarkaður Grettis verður opinn sem hér segir:

  • Þriðjudaginn 29. desember kl. 10-22
  • Miðvikudaginn 30. desember kl. 10-22
  • Gamlársdag 31. desember kl. 10-14

Tekið er fram að börn yngri en 16 ára fá ekki afgreiðslu nema í fylgd með fullorðnum og minnt er á notkun flugeldagleraugnanna til að vernda augun.

Fleiri fréttir