Brjánn og Dagsbrún sigruðu á Staðarskálamótinu
feykir.is
Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla
02.01.2014
kl. 15.09
Um síðustu helgi fór Staðarskálamótið 2013 í körfubolta fram í Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra á Hvammstanga. Sex lið voru skráð til leiks í karlaflokki og tvö í kvennaflokki.
Liðin sem þátt tóku í karlaflokki voru; Besta liðið, Fimleikafélagið Brjánn, Grettir, Hrútabolti bc., Kormákur eldri og Víðir. Það voru kempurnar í Fimleikafélaginu Brjáni sem sigruðu í úrslitaleik mótsins.
Í kvennaflokki voru það Dagsbrún og Lilja og lukkutröllin sem skráð voru til leiks og voru það dömurnar í Dagsbrún sem stóðu uppi sem sigurvegarar.
Heimild: Norðanátt.is