Brotnir staurar í Lýdó

Allar björgunarsveitir í Skagafirði hafa verið að aðstoða starfsmenn RARIK við að berja ísingu afrafmagnslínum og segir Haraldur Ingólfsson formaður Skagfirðingasveitar þá hafa verið að frá því klukkan 3 í nótt. Nokkrir rafmagnsstaurar liggja brotnir eftir veðurhaminn í svokallaðri Efribyggðalínu í nágrenni Álftagerðis.

Svo óheppilega vill til að flestir starfsmenn RAKRIK á svæðinu eru í sinni árlegu starfsmannaferð og sóla sig nú á Tenerife en þá er gott að stóla á björgunarsveitirnar sem að venju bregðast vel við hjálparbeiðnum.

Björgvin Jónsson hjá Björgunarsveitinni Gretti sendi Feyki meðfylgjandi myndir af brotnum staurum í Lýdó.

Fleiri fréttir