Brúsastaðir afurðahæsta kúabúið
Mest meðalnyt eftir árskú á nýliðnu ári, 2013, var á búi Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, A-Hún. með 7.693 kg á árskú. Þetta kemur fram í niðurstöðum skýrsluhaldsársins í mjólkurframleiðslunni 2013 sem nú hafa verið reiknaðar og birtar á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins.
Þá var búið á Brúsastöðum einnig á meðal þeirra tíu efstu árið 2012. Bú Valdimars Óskars Sigmarssonar í Sólheimum í Sæmundarhlíð, Skag. var einnig á meðal hinna efstu árið síðastliðið ár eða áttunda búið í röðinni með meðalnyt árskúa 7.394 kg.
Samkvæmt skýrslunni skiluðu 584 framleiðendur afurðaupplýsingum á árinu, en 587 árið áður. Helstu niðurstöður eru þær að 22.509,1 árskýr skilaði 5.621 kg nyt að meðaltali. Það er hækkun um 15 kg frá árinu 2012 en þá skiluðu 22.879 árskýr meðalnyt upp á 5.606 kg.
Mestar meðalafurðir nú voru í Skagafirði 5.976 kg eftir árskú. Sama var uppi á teningnum eftir árið 2012 en þá var meðalnytin einnig mest þar, 6.095 kg. Meðalbústærð reiknaðist 38,5 árskýr á árinu 2013 en sambærileg tala var 38,9 árið á undan. Meðalbústærð reiknuð í skýrslufærðum kúm var nú 52,8 kýr en 2012 reiknuðust þær 53,3.