Bryndís Rut valin í æfingahóp hjá U19 landsliðinu

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið æfingahóp sem æfir um komandi helgi.  Þessar æfingar eru liður í undirbúningi fyrir forkeppni EM en riðill Íslands verður leikinn í Búlgaríu, dagana 21. - 26. september.

Bryndís Rut Haraldsdóttir, markvörður meistaraflokks kvenna hjá Tindastóli var valin í æfingahópinn hjá U19 landsliðinu.

Bryndís hefur staðið sig mjög vel í sumar og tekið miklum framförum, en hún hóf feril sinn hjá Tindastóli fyrir tveimur árum, þá 16 ára.

Á vef Tindastóls kemur fram að hún þótti mjög huguð og kjarkmikil og var því beðin um að vera í marki og ekki stóð á jákvæðu svari. Bryndís stóð sig frábærlega þetta sumar og síðan var ekki aftur snúið. Núna tveimur árum seinna hefur hún spilað í marki í þrjú sumur og staðið sig frábærlega. Það gerðist svo á þriðjudaginn að landsliðsþjálfari u 19 ára kvenna hringdi og sagðist vera búinn að fylgjast með Bryndísi í allt sumar og að hún væri komin í lokaúrtakshóp fyrir evrópumót U19 kvenna sem fram fer í Búlgariu í september. Þar ættu meðal annara leikmanna þrír markverðir sæti og Bryndís er ein af þeim. Í mótið fara bara tveir markmenn þannig að nú er það í Bryndísar höndum um næstu helgi að heilla Ólaf Pétursson þjálfara U19 kvenna. Það ætti ekki að reynast henni erfitt því stelpan er stórkostlegur karakter og á auðvelt með að heilla fólk upp úr skónum.

Fleiri fréttir