Búðin "A must see"
feykir.is
Skagafjörður
07.10.2013
kl. 09.45
Heimildamynd Árna Gunnarssonar, Búðin, hlýtur góða dóma í vefriti Iceland Review þar sem gagnrýnandi telur hana „A must see.“ Sami gagnrýnandi segir þetta ánægjulega, fyndna og indæla mynd sem ylji manni um hjartarætur og flytji mann aftur til hinna gömlu góðu daga á Íslandi.
Að sögn Árna Gunnarssona er kvikmyndahátíðinni RIFF nú lokið. „Búðin var sýnd þrisvar í Háskólabíói og um 300 manns sáu hana þar í heildina. Ég er í viðræðum við Bíó Paradís um að sýna myndina í næsta mánuði. Króksbíó er með sýningu í kvöld (mánudag) klukkan. 20:00. Beðið hefur verið um myndina til sýningar á kvikmyndahátíð í Indlandi og á Íslendingahátíð í Toronto í Kanada,“ segir Árni.