Byggðalistinn - opin kosningaskrifstofa og vöfflukaffi
Þau leiðu mistök urðu að auglýsing Byggðalistans með opnunartíma kosningarskrifstofa í Skagafirði fór ekki í prentútgáfu Sjónhornsins. Kosningaskrifstofan í Borgartúni 2 (Skátaheimilinu á Króknum) er opin 13. maí, 14. maí og 15. maí frá kl. 17-19. Þá er einnig kosningakaffi þann 16. maí frá kl. 14-17. Á Hofsósi er svo kosningakaffi þann 16. maí frá kl. 14-17 á Retró Mathús. Í Varmahlíð verður svo kosningavaka í Miðgarði, efri hæð, frá kl. 21:00. Allir velkomnir - Hlökkum til að sjá ykkur
