Byggðarráð gefur ASÍ langt nef og óskar því velfarnaðar í samstarfi sínu við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu í húsnæðismálum

Sauðárkrókur.
Sauðárkrókur.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar hefur falið sveitarstjóra að hefja vinnu við stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar með það að markmiði að fjölga íbúðum í sveitarfélaginu. Íbúðalánasjóður hefur þegar auglýst eftir umsóknum um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum og er fjárhæð til úthlutunar sem stofnframlög ríkisins á árinu 2016 að hámarki einn og hálfur milljarður.

Í fundargerð Byggðarráðs segir að sveitarstjóra sé jafnframt falið að athuga með samstarfsaðila í verkefnið en eftir fund byggðarráðsfulltrúa með forseta ASÍ sé ljóst að ekki er vilji þeirra samtaka til að koma að slíku verkefni með sveitarfélaginu. Ljóst má vera að ASÍ ætlar að einbeita sér að húsnæðismálum á stór-Reykjarvíkursvæðinu enda segir í niðurlagi fundargerðarinnar: „Byggðarráð óskar ASÍ velfarnaðar í samstarfi sínu við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu í húsnæðismálum.“

 

Markmið með þessum nýju lögum er að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga, sem eru undir tekju- og eignamörkum skv. 10. gr. við upphaf leigu, með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda eða að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna. Í því skyni er ríki og sveitarfélögum heimilt að veita stofnframlög til byggingar og kaupa á almennum íbúðum til að stuðla að því að í boði verði leiguíbúðir á viðráðanlegu verði fyrir þá sem þurfa á því að halda, þ.m.t. fyrir námsmenn, ungt fólk, aldraða, fatlað fólk og fólk sem ekki er fært um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna eða verulegs fjárhagsvanda.

Fleiri fréttir