Byggðarráð Húnaþings vestra fundar

813. fundur byggðarráðs Húnaþings vestra haldinn í gær í fundarsal Ráðhússins. Á dagskrá var aðalfundarboð Byggðasafns Húnvetninga og Strandamann og umsókn um námsvist í tónlistarskóla utan lögheimilis sveitarfélags. Þá var lagt fram bréf Strandabyggðar vegna hlutafjár Húnaþings vestra í Sorpsamlagi Strandabyggðar.

Afgreiðslur voru sem hér segir:

1. Lagt fram aðalfundarboð Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna sem haldinn verður þriðjudaginn 19. nóvember n.k. kl 14: á Byggðasafninu að Reykjum. Samþykkt að sveitarstjóri verði fulltrúi Húnaþings vestra á fundinum og oddviti til vara.

2. Umsókn um námsvist í tónlistarskóla utan lögheimilissveitarfélags, sem frestað var á síðasta fundi byggðarráðs. Byggðarráð samþykkir erindið.
Samþykkt að taka á dagskrá.

3. Lagt fram bréf Strandabyggðar dags. 14. nóvember sl. Þar sem fram kemur að sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkir að leysa til sín hlutafé Húnaþings vestra í Sorpsamlagi Strandabyggðar að því gefnu að Kaldrananeshreppur og Árneshreppur geri slíkt hið sama

Fleiri fréttir