Byggðasafn Skagfirðinga fær Evrópustyrk

Byggðasafn Skagfirðinga hefur ásamt erlendum samstarfsaðilum fengið úthlutað styrk til rannsókna á fornri málmbræðslu. Styrkurinn kemur úr sjóði á vegum verkefnis sem kallast CHARISMA og er samstarfsverkefni fjölda rannsóknarstofa víðsvegar um Evrópu og er fjármagnað af Evrópusambandinu.

Á vef Byggðasafns Skagfirðinga segir að upphaf verkefnisins megi rekja til uppgraftar fornleifadeildar safnsins á Skógum í Fnjóskadal en þar fundust þrjár heilar deiglur og á fjórða tug deiglubrota og mikið magn gjalls með kopar innskotum.

Í í fyrstu var lagt upp með að sækja um styrk til greiningar á efniviðnum frá Skógum en í ferlinu var ákveðið að víkka verkefnið út og freista þess að fá greiningu á fleiri deiglum sem fundist hafa við fornleifarannsóknir eða eru til á söfnum landsins til samanburðar.

Verkefninu stjórna Thomas Birch doktorsnemi við háskólann í Aberdeen, Guðmundur St. Sigurðarson fornleifafræðingur hjá Byggðasafni Skagfirðinga og dr. Marcos Martinón-Torres hjá University College London,

Sjá nánar í Feyki sem kemur út í dag.

Fleiri fréttir