Eldhús fær nýtt útlit - myndir

Þá er komið að því að sjá hvaða breytingar þau hjón, Hrafnhildur og Logi, gerðu inn í eldhúsinu sínu. En eins og kom fram í síðustu færslu þá keyptu þau sér hús í sumar á Sauðárkróki og hafa verið að taka ýmislegt í gegn undanfarið. Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með henni á Snapchat endilega addið henni hrafnhv en þar deilir hún með fylgjendum sínum öllu milli himins og jarðar ásamt framkvæmdagleði þeirra hjóna.  

Í eldhúsinu þeirra var eldri innrétting frá ikea sem var hætt að fást en þau langaði aðeins til að breyta og bæta í kringum ísskápinn. Þá fundu þau svipaða innréttingu hjá Ikea og skiptu út þeim hluta og settu nýja inn. Þá ákváðu þau að filma bæði nýju og gömlu innréttinguna og fengu þau filmuna í Bauhaus. Með því að fara þá leið að filma og skipta bara út úr innréttingunni sem nauðsynlega þurfti þá náðu þau að spara sér pening til að kaupa nýjan ísskáp. Það eina sem þau eru ennþá að gera upp við sig er hvort að þau eigi að halda þessum lit á flísunum, þessum rauða, eða hvort þau eigi að mála yfir þær. Hvað finnst ykkur? Ég segi... halda þeim eins og þær eru því eftir þessar flottu breytingar þá eru flísarnar orðnar aðal málið í innréttingunni. Núna sjást þær en þær gerðu það ekki fyrir breytingar. Ótrúlega flott hjá þeim hjónum og bíð ég spennt eftir að sjá hvað þau hafa verið að gera meira skemmtilegt.

 

önnur     

Hér sjáið þið breytingarnar í kringum ísskápinn

hrafnsnapp

Snappið hennar Hrafnhildar

Njótið helgarinnar

Sigga sigga sigga

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir