COALESCE - Myndlistarsýning í Gúttó

COALESCE er sýning á nýjum listaverkum eftir listamenn sem um þessar mundir dvelja og starfa í Nesi Listamiðstöð á Skagaströnd. Samkvæmt fréttatilkynnignu fjalla verkin um íslenska menningu, landslag og þjóðtrú út frá mismunandi bakgrunni hvers listamanns og framkalla sjónræna frásögn um tíma og staði.

„Sýningin er lokasýning samstarfsverkefnis Ness listamiðstöðvar, FNV og Sólon myndlistarfélags og er verkefnið styrkt af Vaxtarsamningi SSNV. Sólon, Nes listamiðstöð og FNV hafa þó fullan hug á að halda samstarfi og samskiptum áfram og munu væntanlega leita leiða til þess í framhaldinu,“ segir í fréttatilkynningunni.

Sýningin verður í Gúttó á Sauðákróki um helgina 18. - 19. október, frá kl. 15-17. Gúttó er gamla Góðtemplarahúsið á Sauðárkróki og er staðsett í elsta hluta bæjarins, á bak við Sauðárkróksbakarí.

Fleiri fréttir