Contalgen Funeral á Bar 11
Contalgen Funeral spilar á Kreppukvöldi á Bar 11 næstkomandi fimmtudagskvöld, 26. janúar.
Kreppukvöldin er vikulegur viðburður á Bar 11, en hann er staðsettur við Hverfisgötu 18 (á móti Þjóðleikhúsinu).
Contalgen Funeral vinnur nú að sinni fyrstu plötu en tvö lög af henni hafa þegar heyrst í útvarpi, lögin Pretty Red Dress og Charlie. Það síðarnefnda er hægt að kjósa inná Vinsældarlista Rásar 2 (ruv.is/topp30).